Um fyrirtækið

Greiðsluveitan er sjálfstætt starfandi einkahlutafélag í eigu Seðlabanka Íslands. Hjá því starfar hópur sérfræðinga sem sinnir hinum ýmsu verkefnum tengdum starfsemi félagsins.

Tilgangur félagsins er að starfrækja greiðslukerfi og önnur þjónustukerfi tengd greiðslumiðlun í samræmi við gildandi lög og reglur, þ.á m. að viðhalda og tryggja öryggi og virkni þeirra, svo og skyld starfsemi.

Stjórn Greiðsluveitunnar hefur sett sér siðareglur sem eru fyrirtækinu leiðbeinandi þegar kemur að því að gæta siðferðislegrar og samfélagslegrar ábyrgðar, bæði innan stjórnar, í félaginu og út á við.

Greiðsluveitan er skráð í fyrirtækjaskrá.
Virðisaukaskattsnúmer: 87592.

Stjórn Greiðsluveitunnar ehf
Vigdís Ósk Helgadóttir, stjórnarformaður
Guðrún Sóley Gunnarsdóttir
Páll Kolka Ísberg
Ómar Þór Eyjólfsson, varamaður

Framkvæmdastjóri félagsins er Sigríður Dís Guðjónsdóttir